Lífgum upp á gráan hversdagsleikann

Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira spennandi og innihaldsríkari, er mælst til að þú gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði reglulega...

1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.

2. Kallaðu sjálfann þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.

3. Stattu fastur á því að netfangið þitt sé: Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca

4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu,má bjóða þér franskar með þessu?"

5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir,,Innbox"

6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót

7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.

8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.

9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.

10. Ekki nota punkta.

11. Hoppaðu í stað þess að ganga.  

12. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé,,taka með".

13. Syngdu með í óperunni.

14. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.

15. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga.

16. Tilkynntu vinum þínum, fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplagður.

17. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu,Rock Hard.

18. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú ,,Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"

Og að lokum, síðasta ráðið til að halda uppi mátulegri geðveiki í hversdagsleikanum:

19. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað

muaahaha!!!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ys og þys út af engu

Höfundur

Rúnar Már Magnússon
Rúnar Már Magnússon
Kapteinn í þjálfun
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...1333120
  • ...ryr1
  • ...ryr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband