23.1.2007 | 08:14
Þegar Davíð hitti Golíat
Þetta var einn skemmtilegasti leikur sem ég hef séð í langann tíma. Ég var einn í möttökunni á Baron og lifði mig algjörlega inn í leikinn með tilheirandi hrópum og köllum. Það er ekki laust við að maður fengi flass-bakk yfir í þegar íslendingar unnu B-heimsmeistarakeppnina, slík var stemmningin. Það má eiginlega segja að eftir þessa frábæru byrjun hjá strákunum voru frakkarnir gjörsamlega slegnir út af laginu, og náðu aldrei laglínunni aftur. Maður hefur nú séð íslenska liðið ná góðu forskoti áður og tapa því niður aftur. En eins og þeir voru að spila í gær að þá sá maður á fyrstu mínútunum að það var ekki að fara að gerast í þetta skipti, vörnin hélt nánast öllu, sóknin var flott og markvarslan frábær (áfram Birkir). Ef að þeir taka alla leiki eins og þennan þá er maður ekki í minnsta vafa að við verðum Heimsmeistarar 2007. Áfram Ísland
Íslendingar gjörsigruðu Evrópumeistaralið Frakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ys og þys út af engu
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er að segja þér það... er það samt eðlilegt að þrátt fyrir sterka trú mína á að við myndum vinna þennan leik að þegar við vorum 9 mörkum fyrir og 8 mínútur eftir að maður sé drullu stressaður um að þetta sé ekki búið? Ef við hefðum verið 9 undir og 8 eftir þá hefði maður fengið sér eitthvað að borða bara og gluggað í góða bók, en samt ekki slökt sjáðu...
Hannibal, 23.1.2007 kl. 08:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.