21.9.2007 | 08:02
First session complete
Það var greinilegur taugatitringur í mönnum fyrir fyrsta tímann í herminum (eða kanski var það bara eftir Red Bull-ið), en það reyndist algjör óþarfi því að kennarinn okkar reyndist vera algjör snillingur. Hann byrjaði á því að kynna sig og sagði að hann hefði verið í 17 ár í flughernum og ég hugsaði oó nú á að rústa okkur. En hann gerði bókstaflega allt til að draga úr stressinu í okkur og reyndist vera algjör ljúflingur. Við byrjuðum á því að Thomas byrjaði sem PF(pilot flying) og ég var PM(pilot monitoring), ég hugsaði, fjúkk, nú get ég bara slappað af og litið á mælana og fylgst með honum..little did I know. Það sem þetta er nú einusinni þotu hermir að þá gerist allt miklu, MIKLU hraðar en ég er vanur þannig að ég var alveg pung-sveittur allan tímann við að monitora og aðstoða og kalla í radio og skipta um tíðnir og hitt og þetta. Hugsunin um að slappa af hafði verið skilin eftir á flugbrautinni. Síðan skiptum við um sæti og ég varð PF. Ég hugsaði, úff ef að ég hafði svona mikið að gera við að monitora hvernig á þetta eftir að verða. En það reyndist miklu auðveldara að fljúga heldur en að monitora, allavega fyrir mig.
Í tímanum í dag þá munum við koma til með að fá vélarbilun fyrir flugtak, við munum líka skoða ofris aðeins og CANPA aðflug (constant angle non-precision approach). Þannig að nú erum við bara spenntir eftir þennan fyrsta tíma að komast í herminn aftur. Ég setti hérna inn mynd af herminum sem við erum að flúga. Glæsilegur ekki satt?
Um bloggið
Ys og þys út af engu
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heppnir að fá svona góðan kennara, það skiptir svo miklu máli.
Flottur hermir!
Hlakka til að heyra hvernig tími 2 var
Frú Fjóla (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 19:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.