Heja Sverge

Þá er ég sestur við skriftir í landi Volvo station.  Án gríns þá held ég að svona þriðji hver bíll sé Volvo og annar hver bíll er station-bíll.  En þetta er ekkert sérstaklega ódýrt land, það kostar til dæmis á hótelinu mínu um 1500kr að fá sér hamborgara, sem er by the way eitt það ódýrasta á matseðlinum, og þetta er ekki einu sinni "fínt hótel". Ég fór til Stokkhólms í dag og það var svo sem ágætt.  Öll húsin eru 5 hæðir og annað hvort brún eða gul (mjög spes) þannig að það er ekki mikil litagleði í þessum "frændum okkar".  Hérna eru þessar klassísku búðir eins og dressmann, Zara, Topshop og, rúsínan í pylsuendanum, H&M.  Ég þræddi þessar búðir í dag með fylgifisknum mínum honum Tómasi sem er með mér í Crew og herbergi.  Mér fannst frekar skrítið að fara og skoða föt með einhverjum sem ég þekki ekki neitt og hann er ekki einusinni stílisti.  En ég skoða þetta betur við tækifæri þegar ég er einn.

takkogblessíbili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HEHEHEHE...Oh hvað er gaman að lesa svona færslu frá sveitadreng sem er greinilega í fyrsta sinn í Útttlöööndum.....Og þar að auki staddur í fegurstu borg Skandinavíu...menn greyið er greinilega staddur í Rynkeby, eða í álíka hverfi, og men herre gud hamborgarinn á 1500 kall...Halló það finnast Burger King í STHLM.. Big Mac meny á 550 ískr...Já og geiiminn hann fór í mollið í Rynkeby fann bara dressmann, Zöru og annað drasl, ég ráðlegg þér kallinn minn að labba BIblioteksgatan och titta i stan......get lofað að það er skárra en helv bullið á skerinu....hadesobraisverige...

BillaBong (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 19:18

2 identicon

Þú finnur þér bara eitthvað seinustu tvo dagana og kannski sleppir fylgifisknum bara þá verður hann kannski farinn þá?

Hver í ósköpunum er billabong??

"sveitadrengur í fyrsta sinn í útlöndum" hahahahahahahah 

Frú Fjóla (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 21:23

3 Smámynd: xena

iss piss...svíar eru bara spes... norðmenn eru miklu betri hehe

vona að þú hafir það gott - veit að það er örugglega erfitt fyrir þig að vera án Mrs Rúnsu og litlu krúsilínu... en þá kemur barnaland sterkt inn;)

Knús og kossar frá okkur akureyringum!

xena, 14.9.2007 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ys og þys út af engu

Höfundur

Rúnar Már Magnússon
Rúnar Már Magnússon
Kapteinn í þjálfun
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...1333120
  • ...ryr1
  • ...ryr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 273

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband